Til eru samtök sem kallast Open doors og hafa það að markmiði að aðstoða aðþrengt kristið fólk sem býr í svokölluðum lokuðum löndum. Stofnandinn var hollendingur sem kallaði sig Bróður Andrés. Hann fór margar ferðir með Biblíur, peninga og önnur hjálpargögn til kristins fólks í kommúnistaríkjunum í A-Evrópu á árunum fyrir hrun berlínarmúrsins. Eftir að þau lönd opnuðust og hægt var að flytja þangað hjálpargögn og annað sem gagnaðist hinum aðþrengdu kristnu söfnuðum, sneri Bróðir Andrés sér að örðum löndum sem þá voru lokuð og þar sem kristnir menn voru aðþrengdir eða ofsóttir. Á síðustu árum hefur Open Doors einbeitt sér að aðstoð við kristið fólk í múslimalöndunum og orðið mikið ágengt.

