Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Fræðsluefni Hvernig eiga eiginmenn að viðhalda heilbrigðu og Guði þóknanlegu kynlífi?
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Hvernig eiga eiginmenn að viðhalda heilbrigðu og Guði þóknanlegu kynlífi?

Þýðing og endursögn á hluta greinar eftir séra Ted Haggard um það hvernig hægt sé að forðast siðferðislega hrösun. Greinin heitir: "Sex, lies and the fallen minister" og birtist í jan/febr blaði tímaritsins "Ministries Today" árið 1999.

 

par1. Beindu kynhneigð þinni eingöngu að eiginkonu þinni
Karlmenn eiga oft í vanda með kynlífsóra og sjálfsfróun sem gerir það að verkum að þeir eiga erfitt með að beina kynhneigð sinni að konu sinni einni. Klámrit, símaklám og kynlífsefni á netinu draga kynlöngun mannsins frá eiginkonunni og til einhvers annars (einhverrar annarrar konu/ mynd/ raddar o.s.f.). 
Eignkonan finnur á sér ef eitthvað þess háttar hefur náð athygli mannsins og togar hann til sín. Hún finnur að það dregur úr einlægni í kynlífi hennar og manns hennar. Þegar karlmenn (eiginmenn) eiga í baráttu með þessa hluti, geta þeir ekki verið eins nærgætnir og ástríðuheitir og þeir vildu vera gagnvart konunni og hjónabandið líður fyrir. Eina leiðin til að varast þetta er að beina kynhneigð sinni að konu sinni einni.

2. Lærðu að vera góður elskhugi
Páll postuli talar enga tæpitungu um það í 1. Kor. 7. að líkami eiginmannsins tilheyrir eiginkonunni og að líkami konunnar tilheyrir eiginmanni hennar. En þar með er ekki öll sagan sögð. Nei, því að við eigum líka að þóknast og fullnægja maka okkar í þessum efnum. Hjónabandið er eins og mynd af sambandinu milli Krists og kirkjunnar, þannig að rétt eins og við lærum að þóknast Kristi verðum við einnig að þóknast maka okkar.
Það er áhugavert að á öllum sviðum lífsins nema þessu, erum við fús að læra af reynslu annarra. Þegar að kynlífi okkar kemur, erum við svo hræddir um að slíkt gæti leitt til óheilbrigðs kynlífs (einhvers sem er ósiðlegt), að við viljum ekki leita ráða og leiðbeininga. Ég álít að það sé viturlegt fyrir hjón að læra hvernig þau geti orðið góðir elskendur og auka þekkingu sína og hæfni með árunum.

3. Hafðu gætur á útliti þínu
Líkami þinn er musteri Heilags anda svo að þín ábyrgð er að gæta hans vel. Hér á kristið fólk í reynd ekkert val, ef það vill gera vilja Guðs. Okkur ber að hugsa um velferð líkamans svo að við séum fær um að framkvæma þá hluti sem Guð hefur ætlað okkur. Eitt af því er að elska og annast maka sinn. Það liggur því í augum uppi að maki þinn verður ánægðari og betri elskhugi ef þú heldur líkama þínum í góðu formi. 

4. Forðastu óeðlileg/slæm tengsl við aðra
Margar ástæður geta verið fyrir því að fólk tengist hvort öðru, sumar góðar, aðrar slæmar. Þannig þurfa foreldrar að eiga góð tengsl við börnin sín. Gift fólk þarf líka að eiga heilbrigð tengsl við aðra -félaga, samstarfsfólk, vini og safnaðarmeðlimi. Allt þarf þetta fólk að eiga heilbrigð og jákvæð tengsl. Óeðlileg og slæm tengsl geta þróast við aðstæður þar sem annar aðilinn er háður hinum á einhvern hátt, þar sem fólk sýnir óviðeigandi tilfinningar (t.d. ástúð, óeðlilega mikla umhyggju, daður osf) eða þar sem fólk gefur sig á vald ósiðlegum draumórum. Óeðlileg og slæm tengsl geta því miður einnig þróast milli bænafélaga þó svo að tengsl þeirra og aðstæður séu að öðru leyti eðlilega. Við skulum forðast þannig óeðlileg tengsl við aðra. Áttum okkur strax í byrjun ef slík tengsl eru að þróast á rangan veg. Nauðsynlegt getur verið að við rjúfum þau strax svo að hlutirnir fari ekki á verri veg, vegna þess að erfitt getur reynst að slíta þau síðar. 

5. Skiljum hvernig kærleikur Guðs flæðir milli fólks
Jesús gefur okkur öllum hlutdeild í kærleika sínum, og þegar sá kærleikur flæðir frá okkur til annarrar persónu, þurfum við að greina þann kærleika frá tilfinningum sem tengjast kynhvöt. Ég hef lært að oft býr Guð til sterka þjónustuhópa með því að tengja fólk saman á öflugan hátt með sínum guðdómlega kærleika. En ef við getum ekki greint á milli kærleika Guðs í hjörtum okkar annars vegar og ástar sem sprettur af kynhvöt hins vegar, þá er eins víst að við munum gera mistök.

Við þurfum að læra að tengjast öðru fólki fyrir kraft kærleika Guðs og megum aldrei menga þann kærleika með tilfinningum sem hafa farið úr sínum rétta farvegi. Ef það gerist þá sköðum við áætlun Guðs með líf okkar.

6. Reyndu að eignast trúnaðarvin af sama kyni og þú, mann sem þú getur verið opinskár við um þessa hluti
Í Biblíunni stendur: "Játið því hver fyrir öðrum syndir ykkar og biðjið hver fyrir öðrum svo að þið verðið heilbrigðir." (Jakobsbréf 5:16). Við getum ekki átt nein leyndarmál ef við eigum að fara eftir þessu. 

Á sama tíma eigum við ekki að örva og hvetja aðra með tvíræðum hætti til að hugsa syndugar hugsanir eða haga sér syndsamlega með því að tala um ást og kynlíf af ábyrgðarleysi. Ef slíkir hlutir berast í tal þá ætti tilgangurinn að vera sá að benda á það sem betur má fara (bætt siðferði ástar og kynlífs). Ég tel að allir þurfi að eiga trúnaðarvin til að ræða þessa hluti, vin sem þeir vita að ber kærleika til þeirra og biður fyrir þeim. Þó svo að ég geti ekki bent á neinar reglur hvað varðar fólk sem er í slíku sálgæsluhlutverki, þá álít ég rétt að viðkomandi sé af sama kyni og maður sjálfur, u.þ.b. 10 árum eldri og sé ekki á höttunum eftir mergjuðum og nákvæmum lýsingum skjólstæðings síns á erfiðleikum í kynlífinu.