Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Dagskráin framundan

Dagskrá framundan

Dagskráin framundan

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa
Föstudagur 18. maí: UNIK, samkoma unga fólksins kl.20.00

Sunnudagur 20. maí: Vorhátíð kirkjunnar kl.13.30, en þá líkur barnastarfinu á þessu vori.  Þar verður gleði og  eins og undanfarin ár verður hoppukastali á staðnum, pylsur  og fleira góðgæti fram borið, kunnur sjónhverfingamaður kemur í heimsókn, fram fer útskrift elstu barnanna úr barnastarfinu, söngur og mikið fjör.  Þetta er ekki aðeins fyrir börn heldur líka fyrir fullorðna.  Láttu sjá þig.

Svo verður næst samkoma á annan í Hvítasunnu kl.13.3o, en eftir það flytjast samkomurnar til kl.20.00 á sunnudögum í sumar.
 
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Fjölskylduvikan á Eyjólfsstöðum 11. - 16. júní 2012

Eyjólfsstaðir

Vikan er hugsuð bæði sem frí í fallegu umhverfi og til andlegrar uppbyggingar.
Fræðsla verður fyrir hádegi, bæði fyrir börn og fullorðna.
Eftir hádegi er frjáls tími, þar sem fólk getur gert það sem það vill, farið í styttri ferðir út frá staðnum, hvílt sig, notið fallegrar náttúru farið í sund, eða allir gera eitthvað saman.
Skemmtileg verkefni verða fyrir börnin.
Á kvöldin verða samverustundir.

Verðið er aðeins 10 þúsund kr. á mann, hálft gjald fyrir 6-12 ára og hámarksgjald fyrir fjölskyldu 30 þúsund krónur.

Vikan er opin öllum, sem áhuga hafa.

Skráning og nánari upplýsingar stendur yfir í síma 471-2171 eða á netfanginu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Athugið að skráningu líkur 30.maí

 
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa
 

Alfa námskeið hefst 24. janúar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

alfakall_100Alfa námskeið verður haldið í samstarfið Grafarvogskirkju og Íslensku Kristskirkjunnar í húsnæði Íslensku Kristskirkjunnar, Fossaleyni 14 í Grafarvogi núna á vormánuðum.

Námskeiðið hefst formlega 24. janúar kl. 19:00 með léttum kvöldverði en kynningarkvöld verður 17. janúar kl. 20:00 (kaffi og með því).

Alfa er 10 vikna námskeið, haldið eitt kvöld í viku, þar sem grundvallarspurningum kristinnar trúar er velt upp og reynt að svara. Alfa er haldið í fjölmörgum löndum og í flestum kirkjudeildum. Margar miljónir manna hafa sótt það og margir segja að það hafi breytt lífi þeirra.

Sjáið nánari upplýsingar hér.

Námskeiðið kostar 6000 kr og innifalið í því er léttur málsverður og námskeiðisgögn.

Skráning er hafin í síma 567-8800 (Ísl. Kristskirkjan), 899-1552 (Böðvar), 587-9070 (Grafarvogskirkja) eða á netföngunum Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
Heimasíða UNIK