Eftirfarandi grein er þýdd með leyfi höfundar úr bók hans "Bringing up Boys" (Tyndale House Publ., Wheaton, Ill, USA 2001). Dr. James Dobson hefur helgað krafta sína aðstoð og ráðgjöf við börn og fjölskyldur. Hann er sálfræðingur að mennt og hefur starfað sem slíkur. Hann á að baki 14 ára starfsferil við University of Southern California School of Medicine og hefur auk þess starfað um 17 ára skeið við Children's Hospital of Los Angeles. Hann hefur lærdómtitilinn Ph.D. í Child development frá University of Southern California.