Basar kirkjunnar, sem var laugardaginn 4.desember tókst mjög vel. Margir komu og keyptu sér góðar og ódýrar jólagjafir, sem flestar voru handunnar, einnig heimabakaðar tertur og smákökur, sultur og íslenskt jurtate. Einnig var boðið upp á kaffi, gos og nýbakaðar rjómavöfflur, sem nokkrir vaskir karlmenn bökuðu. Tónlistarfólk kirkjunnar kom fram og söng falleg jólalög meðan fólk gæddi sér á kræsingunum.
Nuddfræðingur bauð upp á axlarnudd og fóru þeir sem það nýttu sér endurnærðir til baka. Andlitsmálun var í boði fyrir börnin, sem fengu kisuandlit, blóm á kinn eða einhver tákn. Á sama tíma voru nokkrir duglegir karlmenn að setja þakið á nýju viðbygginguna, sem nú rís við kirkjuna. Vonandi verður sú aðstaða komin í notkun, þegar við höldum basar að ári. Við þökkum öllum þeim, sem lögðu sitt að mörkum fyrir basarinn og einnig þeim sem komu og gerðu daginn svo ánægjulegan.
Basar kirkjunnar þann 4.desember tókst mjög vel


Biblíulestrarskrá ÍKK
Nýr biskup þjóðkirkjunnar
Við samgleðjumst séra Agnesi Sigurðardóttur með kjör hennar til embættis biskups Íslands og biðjum henni blessunar og velfarnaðar í starfi. Ímynd kristninnar hér á landi hefur beðið skaða á síðustu árum og nú er þörf á viðreisn og siðbót. Séra Agnes hefur sagt í fjölmiðlum að áhersla hennar verði á Jesú Kristi og boðskap hans. Það eru góðar fréttir. 
Íslenska Kristskirkjan er lútersk fríkirkja til húsa að Fossaleyni 14 í Grafarvogi. Þar er kirkjusalurinn og skrifstofa safnaðarins, en hún er opin frá þriðjudegi til föstudags frá klukkan 13:00 til 17:00.