Grind viðbyggingarinnar hefur nú verið reist. Þetta er aðeins byrjunin og mikið verk fyrir höndum. Alla laugardaga frá kl.9 til 14 er vinnudagur, þar sem þörf er á mörgum fúsum höndum. Einnig er unnið annan hvern miðvikudag, þegar ekki er fræðsla frá kl.18-21, og þá er m.a. verið að setja saman glugga og mála þá. Biðjum fyrir byggingarnefndinni um vernd og blessun. Styrkurinn sem við fengum frá kirkjubyggingarsjóði Reykjavíkurborgar er notaður í þetta verk.
Fyrsti áfangi viðbyggingarinnar


Biblíulestrarskrá ÍKK
Nýr biskup þjóðkirkjunnar
Við samgleðjumst séra Agnesi Sigurðardóttur með kjör hennar til embættis biskups Íslands og biðjum henni blessunar og velfarnaðar í starfi. Ímynd kristninnar hér á landi hefur beðið skaða á síðustu árum og nú er þörf á viðreisn og siðbót. Séra Agnes hefur sagt í fjölmiðlum að áhersla hennar verði á Jesú Kristi og boðskap hans. Það eru góðar fréttir. 
Íslenska Kristskirkjan er lútersk fríkirkja til húsa að Fossaleyni 14 í Grafarvogi. Þar er kirkjusalurinn og skrifstofa safnaðarins, en hún er opin frá þriðjudegi til föstudags frá klukkan 13:00 til 17:00.